Starfsmann vantar í ræstingu og eldhús
22 maí 2019
Ræsting og eldhús 100% starf
Leikskólinn Barnaból á Þórshöfn óskar eftir starfsmanni í ræstingu og mótttökueldhús næsta skólaár.
Hjá okkur er stöðugt starfsmannahald og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og leggjum áherslu á að umhverfið einkennist af gleði, virðingu og samvinnu.
Menntun, reynsla og hæfni:
- Reynsla af ræstingu er æskileg
- Stundvísi, dugnaður og áreiðanleiki í starfi
- Ágætis íslensku kunnátta
- Færni í mannlegum samskiptum
Starfið hentar körlum jafnt sem konum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldóra Friðbergsdóttir, leikskólastjóri, í síma 862-4371 eða með því að senda fyrirspurn á barnabol@langanesbyggd.is
Hægt er að sækja um í gegnum heimasíðu leikskólans, http://barnabol.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn
Umsóknarfrestur er til og með 3.júní 2019