Mánudaginn 20. mars heldur Dr. Erla Björnsdóttir fyrirlestra um mikilvægi svefns og svefnvandamál.
Nemendur 7.-10.bekkjar munu fá fræðslu á skólatíma en svo mun Langanesbyggð bjóða upp á opna fyrirlestra seinnipartinn.
Fyrirlestrarnir verða í Þórsveri sem hér seg...
Við fengum góða gesti til okkar í gær. Þetta voru kiðlingar frá Reimari, þeir Grettir og Kókó.
Fríða hefur saumað handa okkur taupoka af öllum stærðum og gerðum nú í að vera 10 ár. Við þökkum henni kærlega fyrir þetta framlag. Upphafið var að við vorum að draga úr plastnotkun hjá okkur en mikið var notað af pokum þegar senda þurfti heim blaut föt.
Við óskum börnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum samveruna og samkiptin á árinu sem er að líða.
Jólakveðja
Alla, Halldóra, Hjödda, Lilja, Marta,Sigga Ósk, Steina og Sigga Jóns.
Fulltrúi Björgunarsveitarinnar kom til okkar í morgun færandi hendi. Sveitin gaf öllum börnunum endurskinsvesti, endurskinsmerki og súkkulaðidagatal . Við þökkum kærlega fyrir þessa góðu gjöf og vonum að allir verði duglegir að nota vestin núna í mesta myrkrinu.