news

Laufabrauðsútskurður á Nausti

29 Nóv 2016

Í dag fór eldri deild leikskólans í heimsókn á Naust og tóku börnin þátt í laufabrauðsútskurði með heimilisfólki. Tókst þetta mjög vel og fannst þeim gaman að hitta svona gamlar stelpur og gamla stráka eins og einn komst svo skemmtilega að orði. Ekki vafðist útskurðurinn fyrir þeim og úr urðu hinar glæsilegustu kökur.