news

Gleðileg jól

22 Des 2016

Við á leikskólanum höfum sannarlega notið aðventunnar þetta árið. Við útbjuggum fallegar gjafir handa mömmu og pabba; föndruðum með foreldrunum; skárum í laufabrauð á Nausti; elstu börnin fóru á jólastöðvar í Grunnskólaum; héldum litlu jólin og dönsuðum í kringum jólartréð úti, kveiktum eld og hituðum kakó.

Venjuleg opnun er hjá okkur á Þorláksmessu, opið er virku dagana milli hátíða fyrir þá sem búnir voru að skrá sig.

Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og vonum að allir njóti samverunnar um jólin.

Kennarar Barnabóls