Jóel Ingi er með leiklistarviku hér í grunnskólanum og hann kom til okkar í leikskólann í gærmorgun.Börn og kennarar skemmtu sér vel.
Núna á mánudaginn 26.júlí opnum við eftir dásamlegt sumarfrí. Það verður yndislegt að taka á móti ykkur öllum eftir vonandi nærandi og gott frí.
Sjáumst sólbrún og sæt eftir helgi
Í dag, kl 16:00, verður sumarhátíðin okkar haldin á lóð leikskólans. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði: leikir, sápukúlur, andlitsmálning, pylsur og safi. Mætum öll og höfum gaman saman seinasta daginn fyrir sumarfrí
Elsti hópurinn okkar fór í morgun í skemmtilega heimsókn á lögreglustöðina þar sem Steinar tók vel á móti þeim. Þau fengu að skoða og fræðast um ýmislegt sem tengist löggæslustarfinu. Þökkum Steinari fyrir góðar mótttökur
Mikið fjör var hjá okkur í dag á hjóladeginum. Við höfðum gott pláss til að hjóla, búa til allskyns þrautir og skemmtileg heit. Veðrið lék líka við okkur sem skemmdi ekki fyrir. Lögreglan heimsótti okkur, skoðaði hjólin og ræddi um öryggismál þegar við erum að hjóla...