news

Viltu vinna með okkur...

16 Sep 2019

Okkur vantar leikskólakennara / leiðbeinanda í Leikskólann Barnaból sem helst þyrfti að geta hafið störf sem fyrst. Hjá okkur eru tuttugu og tvö frábær börn á tveim deildum ásamt skemmtilegum samstarfskonum. Við fluttum í glænýtt leikskólahúsnæði núna í ágúst og eru því starfsaðstæður mjög góðar. Áhugasamir geta haft samband við Halldóru leikskólastjóra í síma 468-1303 eða með tölvupósti halldoraf@langanesbyggd.is til að fá frekari upplýsingar.

Hægt er að sækja um rafrænt hér á heimasíðu leikskólans undir umsóknir