Vantar leikskólakennara
12 maí 2020
Við óskum eftir áhugasömum leikskólakennurum sem eru skapandi í starfi og hafa mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun. Í samræmi við jafnréttisáætlun Langanesbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf kennara
- Færni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði í starfi
- Jákvæðni
- Stundvísi
Barnaból er tveggja deilda leikskóli, með um 25 börn. Okkur vantar deildarstjóra og almennan leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans, http://barnabol.leikskolinn.is/
Sækja má um á heimasíðu skólans eða með því að senda umsókn á netfangið halldoraf@langanesbyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 19.maí 2020 og skal með umsóknum fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir
Skólastjóri leikskólans Barnabóls
Sími 468-1303 eða 862-4371 Netfang halldoraf@langanesbyggd.is