news

Tóti í heimsókn

07 Des 2018

Á hverju ári kemur Tóti á slökkviliðsbílnum að heimsækja elstu börnin og fræðir þau um mikilvægi þess að vera meðvituð um reykskynjara og annan öryggisbúnað. Svo fer hann yfir öryggismálin hér í leikskólanum með börnunum og fleira skemmtilegt. Þau fá svo bók með sér heim og fara yfir málin þar. Þetta fynnst okkur alltaf gaman. Nú í vikunni fóru svo börnin í heimsókn til Tóta til að skoða slökkviliðsstöðina:) hann sýndi þeim tækjabúnaðinn og bílana, þau fengu að prófa að sprauta úr slöngu og sáu svo teiknimynd með Loga og Glóð:) þáðu veitingar og fóru svo aftur heim í skólann sinn:)