Töframaður í heimsókn
04 Jún 2018
Einar Mikael töframaður kom og var með sýningu fyrir okkur í morgun. Frábær sýning og skemmtilegar sjónhverfingar. Hann m.a. galdraði fram peninga, færði til bolta og lét borð svífa. Það var undrun og gleði á hverju andliti og þökkum við foreldrafélaginu fyrir að hafa gefið okkur þessa sýningu.