news

Þið eruð frábær !

05 Jan 2017

Í dag var árlegur vasaljósadagur hjá okkur. Fórum við að venju út í myrkrið með ljósin og leituðum eftir gulli. Það fundust 21 gullmoli og þegar betur var að gáð kom í ljós að einn bókstafur var inní hverjum mola. Þá þurfti að ráða í gátuna:) eftir að hafa hjálpast að kom setningin "Þið eruð frábær- Barnaból". Um þetta gátu allir verið sammála og farið var í allskyns leiki og lesnar sögur með ljósin. Yngri deildin fór út og leitaði að fötum og skóflum með góðum árangri.