news

Lögreglan í heimsókn

07 Jún 2019

Selma frá lögreglunni á norðurlandi eystra kom í heimsókn til okkar í gær. Hún var með efni frá Samgöngustofu um Krakkana í Kátugötu. Hún fór yfir hjálmanotkun með krökkunum og stillti alla hjálmana og sýndi þeim hvernig þeir eiga að sitja á höfðinu. Svo fórum við út og hún skoðaði öryggisatriði á hjólunum þeirra. Frábær heimsókn og við þökkum Selmu kærlega fyrir komuna.