news

Frábær sending

26 Ágú 2019

Hólmfríður í Laxárdal kom færandi hendi í síðustu viku með margnota taupoka sem hún hefur sniðið og saumað úr gömlum gardínum. Við þökkum henni kærlega fyrir. Við höfum í nokkur mörg ár sent heim blaut föt í taupokum sem foreldrar hafa svo skilað. En staðan var orðin þannig síðasta vetur að pokarnir okkar voru nær allir horfnir:) Þannig að ef það leynast pokar á heimilum sem gætu hafa komið frá okkur þá tökum við glöð á móti þeim aftur.