Hún Laura Maria okkar er þriggja ára í dag. Það var dekurdagur hjá okkur svo að afmælisstelpan fékk að sjálfsögðu dekur og bauð svo upp á ávexti :) Til hamingju með afmælið þitt elsku Laura Maria :)
Hugrún Lóa okkar varð tveggja ára 16. október. Hún hélt upp á afmælið sitt með vinum sínum í leikskólanum með ávaxtaveislu. Til hamingju með afmælið þitt elsku Hugrún :)
Hann Breki Dór okkar varð 3 ára þann 25.september. Hann valdi sér bláa kórónu og bauð svo vinum sínum upp á ávexti. Til hamingju með afmælið þitt elsku Breki Dór :)
Hann Víkingur Sveinn okkar varð 2 ára þann 12. september. Hann hélt upp á afmælið sitt í leikskólanum með því að bjóða vinum sínum upp á ávexti og fara í leiki. Til hamingju með afmælið þitt elsku Víkingur :)
Ingunn Alda okkar á afmæli 30. ágúst og varð tveggja ára. Hún valdi sér rauða kórónu og svo drifu allir sig út í sólina þegar afmælisbarnið var búin að bjóða upp á ávexti. Til hamingju með daginn elsku Ingunn :)
Hún Sunneva Dalrós okkar varð tveggja ára 26.ágúst. Hún fékk að sjálfsögðu kórónu og bauð svo vinum sínum upp á ávexti. Til hamingju með daginn elsku Sunneva :)
Hún Kristín Agnes okkar varð þriggja ára sunnudaginn 22. ágúst. Hún hélt upp á afmælið sitt í dag, fyrst var dansað og svo fengu allir ávexti hjá afmælisstelpunni. Til hamingju með daginn þinn elsku Kristín :)
Tinna Rós okkar varð þriggja ára 29.júlí. Hún bauð vinum sínum upp á ávexti og svo fóru allir út að leika í góða veðrinu. Til hamingju með afmælið elsku Tinna :)
Hann Steinbjörn okkar átti þriggja ára afmæli í gær, sunnudag. Hann hélt upp á afmælið sitt í leikskólanum í dag og bauð vinum sínum upp á ís í tilefni dagsins. Til hamingju með daginn elsku Steinbjörn :)
Björn Jörfi okkar varð 3 ára í gær. Við fengum okkur ávexti og svo fóru allir út í góða veðrið. Til hamingju með daginn þinn elsku Björn Jörfi :)