Hann Ástþór Helgi okkar varð 4 ára í ágúst og óskum við honum til hamingju með það:)
Hann Bjarki Þór okkar varð 4 ára í ágúst og óskum við honum til hamingju með afmælið:)
Hugrún Lóa okkar varð tveggja ára 16. október. Hún hélt upp á afmælið sitt með vinum sínum í leikskólanum með ávaxtaveislu. Til hamingju með afmælið þitt elsku Hugrún :)
Hann Breki Dór okkar varð 3 ára þann 25.september. Hann valdi sér bláa kórónu og bauð svo vinum sínum upp á ávexti. Til hamingju með afmælið þitt elsku Breki Dór :)
Hann Víkingur Sveinn okkar varð 2 ára þann 12. september. Hann hélt upp á afmælið sitt í leikskólanum með því að bjóða vinum sínum upp á ávexti og fara í leiki. Til hamingju með afmælið þitt elsku Víkingur :)
Ingunn Alda okkar á afmæli 30. ágúst og varð tveggja ára. Hún valdi sér rauða kórónu og svo drifu allir sig út í sólina þegar afmælisbarnið var búin að bjóða upp á ávexti. Til hamingju með daginn elsku Ingunn :)
Hún Sunneva Dalrós okkar varð tveggja ára 26.ágúst. Hún fékk að sjálfsögðu kórónu og bauð svo vinum sínum upp á ávexti. Til hamingju með daginn elsku Sunneva :)
Hún Kristín Agnes okkar varð þriggja ára sunnudaginn 22. ágúst. Hún hélt upp á afmælið sitt í dag, fyrst var dansað og svo fengu allir ávexti hjá afmælisstelpunni. Til hamingju með daginn þinn elsku Kristín :)
Elsku Árný Lind okkar átti afmæli þann 4. ágúst og hélt svo upp á það hjá okkur þann 5. Óskum við henni til hamingju með 4 ára afmælið sitt:)
Tinna Rós okkar varð þriggja ára 29.júlí. Hún bauð vinum sínum upp á ávexti og svo fóru allir út að leika í góða veðrinu. Til hamingju með afmælið elsku Tinna :)